30.1.2011 | 14:24
Hjálparmeðöl og líðan...
Hér kemur listi yfir það sem ég hef gert til að draga úr verkjum og líða betur:
Matur: Breytt mataræði - Án Sykurs númer 1,2 og 3. Held að það hafi mest að segja. Mínus hveiti og mínus mjólk að mestu. Þetta ætla ég að reyna í einhvern tíma og prófa mig svo áfram, hvort ég þurfi að taka fleira út eða bæta einvherju við.
Hreyfing: Ég að byrja daginn á klukkustundar göngutúr með vagninn og hundinn, ef ég kemst ekki fyrir hádegi reyni ég að fara seinnipartinn.
Er búin að skrá mig í STOTT pilates - mömmutíma hjá Jafnvægi í Garðabæ. Byrja í byrjun Feb og hlakka mikið til. Svo reyni ég að muna að gera smá teygjur og æfingar fyrir háls og herðar einhverntíman yfir daginn.
Bætiefni: Hér gæti ég gert helling...en þar sem ég er með barn á brjósti tek ég bara það sem ég tel Ok. Fiskiolía 2 msk á dag, D-vítamín 1 msk á dag, triple magnesínum complex (úr heilsubúð á Njálsgötu)3 hylki fyrir svefn, svo hef ég verið að taka járn, en það er búið...þarf að kaupa meira.
Hómópati og nuddkona sem ég þekki gaf mér Rus Tox remedíu sem ég reyni að muna að taka 2var á dag. Ég er reyndar með mjög lélega meðferðarheldni og gleymi oft að taka í töflur sem ég á að taka svo þetta er svona 90% í lagi hjá mér núna. Uppá hillu býður svo Life Extention (heyrði frá góðri konu að það svínvirkaði) þarf að ráðfæra mig við lækni áður en ég byrja á því.
Svefn: Ég tók á svefnmunstri Högnu minnar og er komin með nokkuð góða rútínu núna. Hún fer að sofa ca kl 10 á kvöldin og þá er best fyrir mig að fara að sofa um leið og hún svo ég nái amk 5 tímum straight, svo vakna ég 2var á nóttunni þar til kl er 9 en þá fer ég á fætur og byrja daginn.
Ég hef tekið eftir því að þegar ég vakna í fyrsta sinn eru verkirnir ekkert mjög slæmir en eftir því sem ég vakna og sofna oftar verð ég stífari og aumari í liðum í hvert sinn. Það er greinilegt að góður svefn hefur mjög mikið að segja og ég get varla beðið þar til maður getur farið að sofa heila nótt. Geðlæknirinn minn ráðlagði mér að láta minn heittelskaða taka nætur vaktina einu sinni í viku og gef þá bara dömunni úr pela,það hljómar mjög vel og verður reynt fljótlega.
Andlega hliðin: Ég fer til frábærrar konu sem er Geðlæknir að ment, hitti hana núna á ca 2ja vikna fresti. Það hefur reynst mér alveg ótrúlega vel, sérstaklega fyrst eftir að ég veiktist. Þá hafið verið mjög mikið andlegt og líkamlegt álag á mér í langan tíma og mörg "issue" í gangi. Þetta gat ég allt rætt við hana og hún kom með góða punkta og tillögur af lausnum sem ég hef getað nýtt mér. Það er líka bara gott að hafa fagmanneskju með sér í baráttunni, hún veit nákvæmlega um hvað þetta snýst og sýnir mér mikinn skilning, sem fæst ekki alls staðar...þó fólkinu manns sé alls ekki sama.
Svo er það nú bara að gera eitthvað sem er jákvætt og skemmtilegt. Ég fer með Högnu litlu í ungbarnanudd, það er rosa kosý stund hjá okkur stelpunum og svo förum við líka á Föstudagsmornum á tónlistanámskeið fyrir lítil kríli og það er sko gaman :) Átta lítil kríli og mömmur að syngja, dansa og leika, yndislegt alveg.
Svo reyni ég að hafa ekki of miklar áhyggjur af húsverkum og missa mig ekki þó allt sé í drasli hjá drengjunum, draslið fer ekkert...nema ég fjarlægi það :P Draga úr stressi, ætla mér ekki um of...það er sko challenge og erfitt að fara eftir.
Annað: Heit böð og sturtur - fer bara ekki í gang á morgnana fyrr en eftir sjóðheita sturtu. Passa að verða ekki kalt, vera með vettlinga og í hlýjum sokkum í labbitúrum og annari útivist. Er tífalt verri daginn eftir ef mér verður kalt.
Líðan: Breytt mataræði hefur haft góð áhrif, verkirnir eru alls ekki farnir, en þeir eru minni og dagarnir eru nokkuð góðir en vantar þó nokkuð uppá að næturnar séu í lagi, en þar kemur svefnleysið sterkt inn.
En ég finn að ég er orkumeiri, og þreytan ekki að sliga mig. Það er jákvætt og vel þess virði að kæfa sykurpúkann fyrir það :)
Svo er bara að vera jákvæð og líta á veikindinn sem verkefni til að kljást við og leysa.
Það hlýtur að vera ástæða fyrir að heimurinn henti þessu í mig....tútilúúú
Athugasemdir
Gaman að sjá bloggið þitt. Ég er líka með vefjagigt og hef verið að taka mataræðið í gegn. Er samt ekki alveg jafn dugleg og þú, en hef trú á því að mataræðið skipti verulegu máli. Fínt að geta kíkt hér inn og skoðað hvað þú ert að borða og fengið hugmyndir :)
Guðný Pálína (IP-tala skráð) 31.1.2011 kl. 22:03
Takk fyrir þetta Guðný.
Vona að þetta komi að einhverju gagni fyrir einhvern/einhverja.
Ég vona líka að fleiri komi með athugasemdir og bendi okkur hinum á hvað er að virka fyrir þá, allt hjálpar. Gott mataræði skiptir miklu máli og mér líður betur en áður þó svo að hvíld og svefn hafi mjög mikið að segja. Ég er allavega orku meiri og á auðveldara með að takast á við daginn! Stattu þið stelpa ;)
Rakel Húnfjörð, 31.1.2011 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.