26.1.2011 | 17:55
Almennar upplýsingar um vefjagigt
Áður en ég greindist sjálf með Vefjagigt vissi ég lítið sem ekkert um þetta heilkenni, ég þekkti nafnið fibromyalgia úr bókum sem ég hef gluggað í gegnum tíðan í tengslum við næringar-þerapíu námið mitt, en aldrei gefið þessi sérstakan gaum þar sem ég hef ekki þekkt neinn með heilkennið. En núna þegar ég er komin "út úr skápnum" með þetta heilkenni í farteskinu þá allt í einu heyri ég endalausar sögur af konum með Vefjagigt, viðtöl í útvarpi, facebook síður osfv. Læknirinn minn sagði að þetta væri vaxandi vandamál hjá ungum konum (eins og mér) konum sem eru orðnar útkeyrðar fyrir aldur fram því þær ætla sér of mikið. Þær eru í fullri vinnu, með börn og stór heimili, sinna fjölskyldu og vinum, eru þrif og þvottakonur, eldabuskur, kennarar (heimanám barna), ástkonur, ráðgjafar, hunda og kattaþjálfarar, innkaupakonur, skipuleggjarar og jafnvel iðnaðarmenn. Í stuttu máli við sjáum um að heimurinn snúist fyrir fjölda manns (mann, börn og gæludýr). Hvað um það, einn góðan verður dag ertu um eða undir fertugu, útkeyrð á líkama og sál og komin með Vefjagigt.
Hér er almenn lýsing á Vefjagigt sem ég afritaði af vefjagigt.is:
Vefjagigt (e. fibromyalgia syndrome) er langvinnur sjúkdómur eða heilkenni
(e. syndrome) sem samanstendur af fjölmörgum einkennum frá hinum ýmsu líffærakerfum. Helstu einkenni eru langvinnir og útbreiddir verkir frá stoðkerfi, almennur stirðleiki, yfirþyrmandi þreyta og svefntruflanir. Önnur algeng einkenni eru órólegur ristill, ofurnæm þvagblaðra, fótapirringur, kuldanæmi, dauðir fingur (e. Raynaud´s phenomenon), dofi í útlimum, bjúgur, kraftminnkun, úthaldsleysi, minnisleysi, einbeitingarskortur og depurð.
Vefjagigtin getur þróast á löngum tíma og viðkomandi gerir sér litla grein fyrir í fyrstu að eitthvað óeðlilegt sé í gangi. Verkir sem hlaupa til dag frá degi, stirðleiki og yfirþyrmandi þreyta af og til eru oft byrjunareinkennin. Einkennin eru ekki viðvarandi í fyrstu, koma og fara, ný einkenni bætast við. Smám saman vindur sjúkdómurinn upp á sig þar til einkenni hverfa ekki langtímum saman. Einkennin eru mjög mismunandi milli einstaklinga, bæði af fjölda og hversu slæm þau eru. Vefjagigt getur verið mildur sjúkdómur þar sem viðkomandi heldur nær fullri færni og vinnugetu, þrátt fyrir verki og þreytu, en hann getur líka verið mjög illvígur og rænt einstaklinginn allri orku þannig að hann er vart fær um annað en að sofa og matast. Oftar rænir vefjagigtin aðeins hluta af færni til vinnu og athafna daglegs lífs. Þar sem ekki sjást nein ummerki um sjúkdóminn, hvorki á sjúklingnum, né í almennum læknisrannsóknum þá hafa þessir einstaklingar oft á tíðum mætt litlum skilningi heilbrigðisstarfsfólks, aðstandenda, vina eða vinnuveitenda.Enn þann dag í dag telja sumir að vefjagigt sé í raun ekkert annað en verkjavandamál sem geti talist eðlilegur hluti af lífinu og enn aðrir telja að um sé að ræða ruslafötu greiningu það er að allt sé kallað vefjagigt sem ekki er hægt að greina sem aðra almennilega sjúkdóma.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.